Gylfi: Fleira kom til hjá Straumi

Gylfi Magnússon. stækka

Gylfi Magnússon. mbl.is/Golli

mbl.is Eftir Guðrúnu Hálfdánardóttur guna@mbl.is

Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, segir að ákvörðun um yfirtöku Straums skýrist ekki einvörðungu á að bankinn hafi ekki getað staðið skil á skuldbindingum sínum í dag. 

„Ef ekki hefði vantað meira upp á en þetta þá hefði verið reynt að finna leið til að bjarga bankanum yfir þann þröskuld. En það var því miður þannig að Straumur tapaði mjög miklu á síðasta ári þegar bankakerfið hrundi en náði samt að halda sér ofansjávar. Kannski þvert gegn því sem menn héldu. Síðan kemur í ljós að reksturinn er áfram þungur og það gengur á laust fé. Eignarsafnið virðist ekki vera þannig að einhverjir vilji koma að bankanum og leggja honum til eigið fé. Þannig að hann kemst í þrot því miður," segir Gylfi í samtali við mbl.is.

Straumur staðfesti við Fjármálaeftirlitið í gær að bankinn ætti að standa skil á skuldbindingum að fjárhæð 33 milljónir evra í dag, jafnvirði rúmlega 4,7 milljarða króna, en hefði aðeins handbært fé að fjárhæð 15,3 milljónir evra, jafnvirði 2,2 milljarða króna.

Blasir við að starfsemi Straums er að mestu hætt

Að sögn Gylfa er ekki búið að taka endanlega ákvörðun um framtíð Straums að öðru leyti en að skilanefnd var skipuð yfir bankanum í dag  og er bankinn lokaður í dag.

„En það virðist nú blasa við að starfsemi er að mestu hætt. Það þarf auðvitað að halda út ákveðinni starfsemi til þess að halda verðmæti þeirra eigna sem eru í eignasafni Straums og koma þeim síðan í verð eftir því sem tækifæri gefst til. Svo sem mest fáist upp í kröfur. Þannig að það er nú bara þetta ferli sem er svipað og hinir bankarnir gengu í gegnum nema hvað starfsemin er allt annars eðlis heldur en þeirra. Það er ekkert útibúanet sem þarf að halda gangandi eins og var með hina stóru bankana þrjá."

Segir Haugaard misskilja hlutina

Gylfi segir að Thomas Haugaard, hagfræðingur hjá Svenska Handelsbanken í Kaupmannahöfn, misskilji hlutina þegar hann segir að með falli Straums Burðaráss séu auknar líkur á þjóðargjaldþroti. „Hættan á raunverulegu þjóðargjaldþroti hefur aukist," sagði  Haugaard í samtali við Bloomberg. „Ríkisstjórnin hefur nú tekið á sig ábyrgð á meiri skuldum og spurningin er hvort íslenska ríkið sé nægjanlega öflugt til þess að bera þær byrðir," bætti Haugaard við.

„Þetta er algjör misskilningur. Straumur starfaði alls ekki ábyrgð ríkisins. Það var auðvitað þannig að ríkið ábyrgðist innistæður í þessum banka sem og öðrum en hann var ekki með mjög mikla innlánastarfsemi. Þannig að það er alls ekki útlit fyrir að ríkið lendi í einhverjum vandræðum vegna ábyrgða á innistæðum," segir Gylfi og bætir við að allar vonir standi til að eignir nægi fyrir innistæðunum og ríkið stendur ekki frammi fyrir því að tapa neinum peningum sem heitið getur á öðrum viðskiptum við bankann.

„Að vísu var Straumur búinn að fá ákveðna fyrirgreiðslu úr Seðlabankanum en það er gegn veði og ég veit ekki betur en að menn meti þau veð sem svo að þau dugi. Það er því ekkert útlit fyrir að ríkið fái neitt högg út af þessu. Að minnsta kosti ekkert sem máli skiptir," segir Gylfi að lokum. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Innsýn í reksturinn

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir