Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga 1.225 milljónir
Háir vextir á innlendum markaði svo og mikil verðbólga skiluðu mjög góðri afkomu en eignir sem samsvara eigin fé sjóðsins eru að mestu bundnar í verðtryggðum útlánum. Ávöxtun á lausu fé var einnig góð, en mestur hluti þess var varðveittur í Seðlabankanum, samkvæmt tilkynningu til Kauphallar Íslands.
Útborguð langtímalán 15.505 milljónir á árinu
Meginhlutverk sjóðsins er að tryggja sveitarfélögum, stofnunum þeirra og fyrirtækjum lánsfé á hagstæðum kjörum. Útborguð langtímalán á árinu 2008 voru 15.505 m.kr. miðað við 4.047 m.kr. á fyrra ári. Skammtímalánveitingar sjóðsins námu hinsvegar 6.158 m.kr. á árinu en voru 5.840 m.kr. á fyrra ári.
„Aðstæður til töku langtímalána, bæði verðtryggðra og gengistryggðra, voru einstaklega óhagstæðar á árinu. Mikil aukning varð í eftirspurn eftir lánum hjá sjóðnum eftir fall bankanna og tókst sjóðnum að bregðast skjótt við og veita mikið af lánum á síðustu mánuðum ársins. Þar eiga lífeyrissjóðir landsins mikinn þátt sem þátttakendur í skuldabréfaútboðum sjóðsins.
Sjóðurinn hefur ekki tapað útláni frá því að hann hóf starfsemi árið 1967 og engin vanskil voru í árslok 2008," samkvæmt tilkynningu.
Eigið fé í árslok 2008 var 11.273 m.kr. á móti 10.048 m.kr. árið áður. Vegið eiginfjárhlutfall, svonefnt CAD-hlutfall, var í árslok 2008 57% en var 112% í árslok 2007, en þarf að vera 8% skv. lögum um fjármálafyrirtæki.
Gert er ráð fyrir að afkoma sjóðsins á árinu 2009 verði svipuð og árin 2008 og 2007. Aðstæður á lánsfjármörkuðum munu þó hafa úrslitaáhrif á möguleika sjóðsins til að koma til móts við lánsfjárþörf sveitarfélaganna á árinu. Allt kapp verður lagt á að tryggja lánshæfi sjóðsins og viðhalda því trausti sem fjárfestar hafa á skuldbindingum hans.



















