Viðskipti
| mbl
| 10.3.2009
| 17:53
| Uppfært
20:03
3 milljóna evra vegna gjaldeyrisskiptasamninga
Reuters
Viðskiptabankar HB Granda hafa krafið félagið um uppgjör á framvirkum gjaldmiðlasamningum að fjárhæð 3 milljónir evra, jafnvirði 430 milljóna króna, og er sú fjárhæð til varúðar færð til skuldar á reikningum félagsins um áramót.
Fram kemur í tilkynningu frá HB Granda, þar sem ársuppgjör síðasta árs er kynnt, að félagið telji þó að miðað við rétt uppgjör sé fjárhæðin 1,6 milljónir evra, 230 milljónir króna, og hafi þegar greitt hluta hennar í samræmi við það.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















