Viðskipti
| mbl
| 10.3.2009
| 14:58
| Uppfært
15:50
MP banki mótmælti ekki
MP Banki féll í dag frá mótmælum sínum við áframhaldandi greiðslustöðvun Hansa ehf. Eina eign Hansa, sem er að fullu í eigu Björgólfs Guðmundssonar, er enska knattspyrnuliðið West Ham United.
Aðrir lánadrottnar höfðu ekki sett sig á móti greiðslustöðvun og því fær Hansa væntanlega greiðslustöðvun í allt að þrjá mánuði til víðbótar en eigendur félagsins vilja nýta greiðslustöðvunina til að selja West Ham.
Kveðinn verður upp úrskurður um hvort Hanza fái áframhaldandi greiðslustöðvun á föstudaginn. Ef fallist verður á kröfu félagsins verður greiðslustöðvun framlengd um þrjá mánuði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















