Viðskipti
| mbl
| 10.3.2009
| 14:09
Tæplega 300 skráðir á Viðskiptaþing
Tæplega 300 manns hafa skráð sig á árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands sem verður haldið á fimmtudaginn á Reykjavík Hilton Nordica. Að þessu sinni er yfirskrift þingsins „Endurreisn hagkerfisins“, en meðal gesta verða lykilmenn úr íslensku viðskiptalífi, ráðherrar, þingmenn, fræðimenn, erlendir sendiherrar og embættismenn.
Erindi verða flutt af Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, Erlendi Hjaltasyni formanni Viðskiptaráðs og Dr. Pedro Videla prófessor í hagfræði við IESE viðskiptaháskólann í Barcelona. Þá mun Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenda námsstyrki Viðskiptaráðs.
Að loknum framsögun verða umræður um áherslur stjórnmálaflokkana til framtíðar þar sem fulltrúar allra flokka á Alþingi taka þátt. Þar á eftir verða pallborðsumræður um viðbrögð og viðhorf viðskiptalífsins.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin