Bill Gates aftur ríkastur - Björgólfur í 701. sæti

Bill Gates. stækka

Bill Gates. Reuters

Bill Gates, stofnandi bandaríska hugbúnaðarfyrirtækisins Microsoft, er aftur ríkasti maður heims, að mati bandaríska viðskiptatímaritsins Forbes. Eignir Gates eru metnar á 40 milljarða dala en eignir Warren Buffett, sem talinn var ríkastur á síðasta ári, eru nú metnar á 37 milljarða.

Björgólfur Thor Björgólfsson kemst á listann í 701.-793. sæti en eignir hans eru metnar á 1 milljarð dala, jafnvirði 112 milljarða króna. Í fyrra mat Forbes eignir Björgólfs á 3,5 milljarða dala, 393 milljarða króna samkvæmt núverandi gengi, en hann var þá í 307. sæti á lista blaðsins.

Eignir ríkasta fólks heims hafa rýrnað verulega undanfarið ár og nú eru 793 menn taldir eiga milljarð dala eða meira; í fyrra voru þeir 1125 talsins. Samtals rýrnuðu eignir þeirra úr 4,4 billjónum dala í 2,4 billjónir.

„Stærsta fréttin í dag er, að við erum hér enn og það er enn hægt að finna milljarðamæringa," sagði Monie Begley, talsmaður Forbes, á blaðamannafundi í kvöld.

Eignir Gates minnkuðu úr 58 milljörðum dala í 40 milljarða á síðasta ári. Eignir Buffetts minnkuðu hins vegar úr 62 milljörðum í 37 milljarða og eignir mexíkóska kaupsýslumannsins Carlos Slim Helú, sem var næstríkasti maður heims í fyrra, minnkuðu úr 60 milljörðum dala í 35 milljarða. Hann er í 3. sæti nú.

Flestir milljarðamæringarnir á lista Forbes eru Bandarískir, þar af 10 af 20 ríkustu mönnum heims. Flestir milljarðamæringar búa í New York, 55 og 28 búa í Lundúnum. 25 milljarðamæringar búa í Moskvu en rússneskum auðkýfingum hefur fækkað mjög og eignir þeirra rýrnað á árinu. Þeir voru 87 talsins í fyrra en eru nú 32. Enginn þeirra kemst í hóp 20 ríkustu manna heims.

Tveir Svíar komast á lista yfir 20 ríkustu mennina, þeir Ingvar Kamprad, stofnandi Ikea, og  Stefan Persson, eigandi Hennes & Mauritz.

Meðalaldur milljarðamæringanna er 63,7 ár. Sá yngsti er Þjóðverjinn Albert von Thurn und Taxis  sem er 25 ára og er talinn eiga jafnvirði 2,1 milljarðs dala. Það vekur athygli að annað undrabarn, Mark Zuckerberg sem stofnaði vefinn Facebook, er ekki lengur á listanum. 

Einn milljarðamæringur, sem varla er ánægður með að vera á listanum, er  Joaquin Guzman Loera, 54 ára glæpaforingi, sem talinn er hafa aflað sér milljarðs dala með fíkniefnasölu. Loera er á lista bandarísku alríkislögreglunnar FBI yfir þá sem hún vill helst koma höndum yfir.

Listi Forbes yfir ríkasta fólk heims árið 2009:

  1. Bill Gates, 40 milljarðar dala. Microsoft, Bandaríkin.
  2. Warren Buffett, 37 milljarðar dala. Berkshire Hathaway, Bandaríkin.
  3. Carlos Slim og fjölskylda, 35 milljarðar dala. Fjarskipti, Mexikó.
  4. Lawrence Ellison, 22,5 milljarðar dala. Oracle, Bandaríkin.
  5. Ingvar Kamprad og fjölskylda. 22 milljarðar dala. Ikea, Svíþjóð.
  6. Karl Albrecht, 21.5 milljarðar dala. Aldi, Þýskaland..
  7. Mukesh Ambani, 19,5 milljarðar dala. Efnaframleiðsla, Indland.
  8. Lakshmi Mittal, 19,3 milljarðar dala. Stál, Indland.
  9. Theo Albrecht, 18,8 milljarðar dala. Aldi, Trader Joe's, Þýskaland.
  10. Amancio Ortega, 18,3 milljarðar dala. Zara, Spánn.
  11. Jim Walton, 17,8 milljarðar dala. Wal-Mart, Bandaríkin.
  12. Alice Walton, 17,6 milljarðar dala. Wal-Mart, Bandaríkin.
  13. Christy Walton og fjölskylda. 17,6 milljarðar dala. Wal-Mart, Bandaríkin.
  14. S. Robson Walton, 17,6 milljarðar dala. Wal-Mart, Bandaríkin.
  15. Bernard Arnault, 16,5 milljarðar dala. LVMH, Frakkland.
  16. Li Ka-shing, 16,2 milljarðar dala. Ýmislegt, Hong Kong.
  17. Michael Bloomberg, 16 milljarðar dala. Bloomberg, Bandaríkin.
  18. Stefan Persson, 14,5 milljarðar dala. Hennes & Mauritz, Svíþjóð.
  19. Charles Koch, 14 milljarðar dala. Iðnaður, orka. Bandaríkin.
  20. David Koch, 14 milljarðar dala. Iðnaður, orka. Bandaríkin.  
Umfjöllun Forbes um milljarðamæringana
Björgólfur Thor Björgólfsson.

Björgólfur Thor Björgólfsson.

Warren Buffett.

Warren Buffett. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Innsýn í reksturinn

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir