„Eðlileg viðskipti við Kaupþing"

Ágúst og Lýður Guðmundssynir stækka

Ágúst og Lýður Guðmundssynir Skapti Hallgrímsson

Bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir, segja í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að ef rýnt er í tölurnar í grein sem birtist í Morgunblaðinu um útlán Kaupþings sýni þær  að viðskipti fyrirtækja sem tengjast þeim við Kaupþing eru bæði eðlileg og auðskýranleg. Lánin til Exista samsvari einungis um 11% af heildareignum félagsins í lok júní.

„Á laugardaginn birti Morgunblaðið frétt um tölur sem blaðinu hafði borist frá ótilgreindum aðilum úr trúnaðargögnum frá Kaupþingi banka. Við lestur þessarar fréttar er ekki við öðru að búast en fólk fyllist tortryggni og gremju, enda þeirri mynd brugðið upp að eigendur Kaupþings hafi mergsogið fé út úr bankanum. En ef rýnt er í tölurnar í Morgunblaðinu sýna þær hins vegar svart á hvítu að viðskipti fyrirtækja sem tengjast okkur bræðrum við Kaupþing eru bæði eðlileg og auðskýranleg.

Exista ekki fjármagnað af Kaupþingi

Öll eign okkar bræðra í Kaupþingi hefur verið í gegnum eignarhlut okkar í skráðu almenningshlutafélagi, Exista. Mikilvægt er að gera skýran greinarmun á milli fjármögnunar Exista annars vegar og fjármála okkar bræðra hins vegar. Exista var langstærsti eigandi Kaupþings með um 25% hlut og annað stærsta almenningshlutafélag landsins mælt í eigin fé, stærra en bæði Glitnir og Landsbankinn. Félagið var að litlu leyti fjármagnað af Kaupþingi heldur fyrst og fremst á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.

Samkvæmt tölunum sem birtar voru í Morgunblaðinu námu útistandandi lán Kaupþings til Exista (skammtímalán og langtímalán) um 94 milljörðum króna hinn 30. júní 2008. Þessi fjárhæð samsvarar um 16% af heildarskuldum Exista og einungis um 11% af heildareignum félagsins í lok júní. Stærstu lánin voru vegna yfirtöku Exista á skuldbindingum Lýsingar sem voru fyrir í bankanum þegar Exista tók fyrirtækið og fjármögnun þess yfir árið 2006. Útlán Kaupþings til viðskiptamanna námu samtals 4.169 milljörðum króna hinn 30. júní 2008 svo lán til Exista voru einungis brot af útlánum bankans og innan allra eðlilegra viðmiða. Í fyrrgreindum tölum eru ekki dregin frá veð og eignir á móti þessum lánum, svo sem inneignir hjá bankanum. Þess má geta að innlán Exista og tengdra fyrirtækja hjá Kaupþingi námu um 50 milljörðum króna við fall bankans í október.

Því má svo bæta við að frá miðju ári 2008 til falls íslenska bankakerfisins í október endurgreiddi Exista um 20 milljarða króna nettó til Kaupþings. Lækkuðu því skuldir félagsins við bankann sem því nemur eftir dagsetningu talnanna sem birtar voru í Morgunblaðinu. Exista vinnur um þessar mundir að því að semja um endurgreiðslur lána hér á landi og erlendis, m.a. við um 40 alþjóðlega banka, í kjölfar þess að fjórðungshlutur Exista í Kaupþingi hvarf svo að segja á einni nóttu í október síðastliðnum.

 Komið í veg fyrir krosseignarhald

Í grein Morgunblaðsins kemur jafnframt fram að bankinn hafi veitt félagi í persónulegri eigu okkar bræðra, Bakkabræður Holding, lánafyrirgreiðslu sem nemur liðlega 30 milljörðum króna. Krosseignarhald hefur töluvert verið til umræðu hér á landi og erlendis og hefur áhersla verið lögð á að hindra að krosseignartengsl mynduðust á milli Kaupþings og Exista, m.a. þegar Skipti var tekið af hlutabréfamarkaði á fyrri hluta árs 2008. Ljóst var að Kaupþing, sem átti um 27% í Skiptum, fengi greitt fyrir með hlutabréfum í Exista og hefðu þá myndast gagnkvæm eignartengsl á milli Kaupþings og Exista sem ekki voru til staðar. Til þess að koma í veg fyrir að þessi eignartengsl mynduðust, tókum við bræður það á okkur að taka yfir hlutabréf Kaupþings í Exista og veðsettum á móti eignir okkar. Þannig sýndum við í verki trú okkar á framtíð Exista og leystum jafnframt óæskilega stöðu fyrir Kaupþing. Við fall Kaupþings misstum við þessar eignir okkar til bankans.

Í tölunum sem birtar eru í Morgunblaðinu er blandað saman persónulegum félögum okkar bræðra, almenningshlutafélaginu Exista, dótturfélögum Exista og öðrum tengdum fyrirtækjum. Hnoðað er saman lánveitingum, ónotuðum lánalínum, afleiðusamningum, hlutabréfum og skuldabréfum, væntanlega til þess að blása tölur upp eins og hægt er. Ekkert er vikið að tryggingum og inneignum á móti þessum skuldbindingum eins og eðlilegt væri, eða hvort um var að ræða veltubókarviðskipti eða lánafyrirgreiðslur. Það er ekkert launungarmál að við bræður höfum snúið okkar persónulegu viðskiptum fyrst og fremst til Kaupþings, enda er vart hægt að telja það óeðlilegt. Þau viðskipti hafa öll farið fram í samræmi við reglur bankans og þar höfum við mætt sömu kröfum um tryggingar og kjör eins og aðrir viðskiptavinir. Í þessu sambandi má benda á það að í tölunum sem birtar voru í Morgunblaðinu er hvergi að sjá nafn þess fyrirtækis sem við bræður erum jafnan kenndir við, Bakkavör. Ástæða þess er einföld: Bakkavör er nánast ekkert fjármagnað af Kaupþingi og hefur svo verið um árabil. Viðskiptaferill okkar bræðra spannar yfir 20 ár og samstarf fyrirtækja okkar við Kaupþing á sér 12 ára sögu. Það samstarf hefur byggst á gagnkvæmum hagsmunum þar sem bankinn hefur notið mikilla tekna, ekki síst í formi ráðgjafarþóknana.

 Undirróður gegn Kaupþingi

Um þessar mundir fer fram skipulagður undirróður þar sem gögnum um Kaupþing er markvisst „lekið“ til fjölmiðla. Augljóst er að lög hafa verið brotin með því að koma villandi upplýsingum úr trúnaðargögnum til fjölmiðla og verður það mál án efa rannsakað sérstaklega. Þessi „smjörklípuaðferð“ hefur þrifist í skjóli þess að rannsóknarskýrslur um bankana hafa enn ekki verið birtar opinberlega og skapað kjörinn jarðveg fyrir tortryggni og söguburð.

Fáir myndu fagna meira birtingu rannsóknarskýrslu um aðdraganda að falli bankanna en við bræður, enda höfum við tapað gífurlegum fjármunum á ákvörðunum í aðdraganda og í kjölfar bankahrunsins. Eignir okkar eru að mestu tapaðar, þótt við berum það ekki saman við vanda þeirra sem standa frammi fyrir atvinnumissi eða gjaldþroti. Sem stjórnendur og forsvarsmenn stórra fyrirtækja tökum við ábyrgð á okkar þætti í þessari atburðarás. Sú ábyrgð verður hins vegar ekki leidd í ljós af þeim öflum sem nú beita óvönduðum meðulum til þess að hylja eigin mistök og freista þess að gera einstaklinga sem tengjast Kaupþingi að sakamönnum í augum almennings. Það sem við öll þurfum mest á að halda er heiðarlegt uppgjör sem byggist á raunverulegum rannsóknargögnum. Á þeim vettvangi mun ekki standa á okkur bræðrum að svara til þeirrar ábyrgðar sem að okkur snýr."

Höfundar eru Bakkavararbræður.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Innsýn í reksturinn

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir