„Græðgin varð skynseminni yfirsterkari“

Frá Viðskiptaþingi í dag. stækka

Frá Viðskiptaþingi í dag. mbl.is/RAX

„Græðgin varð skynseminni yfirsterkari. Áhættusækni og óhóf varð einkenni alltof margra fyrirtækja og alltof margir forystumenn atvinnulífsins misstu fótanna í þessum takti,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í ávarpi sínu á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs, sem nú stendur yfir á Hilton Nordica.

Jóhanna sagði að íslenskt viðskiptalíf og þeir sem stæðu að Viðskiptaþingi væru og hefðu verið meðal mikilvægustu áhrifavalda í þjóðfélaginu fyrr og nú.

Jóhanna sagði að kannanir sýndu að almenningur telji að þeir sem stýrðu bönkunum bæru mesta ábyrgð á því hvernig komið væri fyrir okkur og flestir sérfræðingar sem hefðu farið yfir þróun mála væru sömu skoðunar.

Viðskiptalífið sleit sig úr siðferðilegu sambandi við þjóðina

„Ég hef haldið því fram og ég ítreka það hér að viðskiptalífið hér á landi og víða annars staðar, sleit sig úr siðferðilegu sambandi við þjóðina. Fyrir það blæðir almenningur nú þegar á fjórtanda þúsund manna ganga atvinnulausir og gríðarlegir fjármunir hafa tapast hjá einstaklingum og fyrirtækjum,“ sagði Jóhanna.

Hún sagðist heita á alla þá sem teldu sig hafa farið óvarlega og sýnt óhóf að leggja nú sitt af mörkum til samfélagsins. „Ég trúi því ekki að ungt og öflugt athafnafólk vilji segja sig svo úr lögum við samfélag sitt að það þurfi að sækja fjármuni þeirra í erlend skattaskjól með mikilli fyrirhöfn á kostnað skattborgara,“ sagði Jóhanna. Hún sagði að aldrei fyrr hefði verið jafn rík þörf á því að viðskiptalífið sýndi samfélagslega ábyrgð og legði sitt af mörkum. Aldrei fyrr hefði verið jafn rík þörf fyrir jafnræði og virðingu og mikilvægt væri að við nýttum þann mannauð sem þjóðin byggi yfir.

Mat á nýju bönkunum fyrir lok mars

Jóhanna sagði að það hefði háð starfsemi bankanna að efnahagsreikningur þeirra hefði ekki verið endanlega skilgreindur. „Bankar sem búa við slíka óvissu eiga vitanlega örðugt með að starfa eðlilega. Við vitum að bankar eins og önnur fyrirtæki þurfa að byggja ákvarðanir sínar á traustum upplýsingum um eigin stöðu,“ sagði Jóhanna. Hún sagði að mat á nýju bönkunum myndi liggja fyrir fyrir lok mars.

„Það er síðan á grundvelli þessa mats sem ríkisstjórnin mun taka afstöðu til þess hversu miklum fjármunum bönkunum verða lagðir til til þess að skapa þeim svigrúm til að veita þeim, sem á þurfa að halda, eðlilega fjármálaþjónustu. Samkvæmt áætlunum er stefnt að því að endurfjármögnun bankanna verði lokið síðari hluta þessa mánaðar,“ sagði Jóhanna.

Hún sagði að nýr seðlabankastjóri yrði skipaður eftir kosningar og að þá yrði jafnframt skipað í stöðu aðstoðarseðlabankastjóra.

Höftin ekki losuð á næstunni

Jóhanna sagði að þrátt fyrir að allir væru sammála um að losa um gjaldeyrishöftin sem allra fyrst þá hefðu aðstæður ekki skapast til þess að gera slíkt mögulegt. „Áður en hægt verður að losa um þau og að aflétta þeim að lokum, verður að draga verulega úr þeirri óvissu sem einkennir íslenskt efnahagslíf. Skýrari sýn verður að liggja fyrir um skuldastöðu þjóðarbúsins,“ sagði Jóhanna. Hún sagði jafnframt að ef höftunum yrði aflétt of snemma gæti krónan fallið hratt, a.m.k til skemmri tíma, með slæmum áhrifum fyrir skuldsett fyrirtæki og heimili í landinu og erfiðara yrði að lækka vexti.

Jannari skilar niðurstöðum síðar í þessum mánuði

Jóhanna sagði að finnski fjármálasérfræðingurinn Kaarlo Jannari myndi skila niðurstöðum rannsóknar sinnar á lagaumhverfi íslensk fjármálamarkaðar síðar í þesum mánuði. „Ég er sannfærð um að hann muni leggja til breytingar sem eru til þess fallnar að styrkja okkur til framtíðar og endurbyggja trúverðugleika okkar á alþjóðvettvangi,“ sagði Jóhanna.

„Íslendingar eru vel menntuð og dugleg þjóð. Við erum þekkt fyrir sveigjanleika og ég er sannfærð um að sá sveigjanleiki mun koma okkur Íslendingum fyrr í gegnum efnahagslægðina en öðrum þjóðum sem glíma við svipaðan vanda,“ sagði Jóhanna.

Ræða Jóhönnu í heild

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra Ragnar Axelsson

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og Erlendur Hjaltason, formaður Viðskiptaráðs á Viðskiptaþingi í dag.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og Erlendur Hjaltason, formaður Viðskiptaráðs á Viðskiptaþingi í dag. mbl.is/RAX

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Innsýn í reksturinn

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir