Smærri kröfuhafar tapa miklu á gjaldþroti Baugs
Stefán H. Hilmarsson, aðstoðarforstjóri Baugs og Ragnar H. Hall lögmaður Baugs skoða úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem frekari greiðslustöðvun Baugs var hafnað. mbl.is/Golli
Smærri fjármálafyrirtæki eiga óöruggar veðkröfur á Baug upp á tæpar 314,6 milljónir punda, samkvæmt Project Sunrise, sérstakri áætlun um endurreisn Baugs sem kynnt var í janúar. Um er að ræða Sparisjóðabankann, Byr, SPRON, VBS fjárfestingarbanka og ýmis félög tengd Baugi, eins og Landic Property, Stoðir og Fons. Þessi félög gætu tapað allt að fimmtíu milljörðum króna vegna gjaldþrots Baugs.
Smærri kröfuhafar höfðu áður óskað þess að fallið yrði frá greiðslustöðvun BG Holding í Bretlandi. Skilanefnd Landsbankans féllst ekki á þá bón.
Jón Þórisson, forstjóri VBS, segir ekki liggja fyrir hvort eða hversu miklu félagið muni tapa vegna gjaldþrots Baugs. Fjárhæðirnar séu þó ekki af þeirri stærðargráðu að þær muni ráða úrslitum um framtíð VBS. „Það eru að sjálfsögðu vonbrigði að svona sé komið fyrir Baugi. Hvað okkur varðar ræður staða málsins hins vegar engum úrslitum,“ segir Jón. Agnar Hansson, forstjóri Sparisjóðabankans, segir að hætt sé við því að kröfur smærri fjármálafyrirtækja á Baug verði að engu. Hann treystir sér hins vegar ekki til að fullyrða um tap Sparisjóðabankans.
SPRON á kröfur á Baug upp á á þriðja milljarð króna. Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON, segir gjaldþrot Baugs mikil vonbrigði. „Í þessu máli var löngu búið að gera ráð fyrir að brugðið gæti til beggja vona,“ segir hann.
„Við höfum alltaf gert ráð fyrir því versta,“ segir Ragnar Zophonías Guðjónsson, forstjóri Byrs, en kröfur Byrs eru á þriðja milljarð króna. Hann segir synjun um áframhaldandi greiðslustöðvun Baugs mikil vonbrigði en að Byr hefði gert ráðstafanir til þess að búa sig undir þessa niðurstöðu.
Eignir færast í þrotabúið
Við gjaldþrot Baugs færast öll réttindi og allar skyldur yfir í
þrotabúið. Dótturfélag Baugs í Bretlandi, BG Holding, hafði áður verið
sett í greiðslustöðvun að beiðni Landsbankans og er undir stjórn
PricewaterhouseCoopers. Með greiðslustöðvun BG Holding missti Baugur
stjórn á verðmætustu eignum sínum í Bretlandi eins og verslanakeðjunni
Iceland Foods, House of Fraser, Hamleys og fleiri félögum. Skilanefnd
Landsbankans hefur sagt að ekki sé stefnan að selja eignir í Bretlandi
strax. Ef um stórt og mikið þrotabú er að ræða, eins og hér um ræðir,
geta gjaldþrotaskipti tekið nokkur ár. Ekki er því fyrirséð að beiðni
Baugs um gjaldþrotaskipti muni fyrst um sinn hafa áhrif á störf
fyrirtækja undir BG Holding í Bretlandi.



















