Viðskipti
| mbl
| 12.3.2009
| 9:50
| Uppfært
10:05
Straumur upplýsir um lán sín
Í desember s.l. fékk Straumur að láni 133 milljónir evra frá erlendum lánastofnunum til að endurgreiða hluta af láni sem var þá á gjalddaga. Mismunur á upphæð lánsins sem var á gjalddaga, og nýja lánsins, var greiddur meðal annars með veðláni frá Seðlabanka Íslands að upphæð 50 milljónir evra.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straumi en vegna misvísandi frétta undanfarið um lánveitingar til Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. í desember s.l. telur bankinn nauðsynlegt að koma þessu á framfæri.
„Straumur tilkynnti til Kauphallar um endurfjármögnun á 133 milljónum evra eins og reglur Kauphallar gera ráð fyrir. Straumur sá ekki ástæðu til að tilkynna um viðkomandi veðlán frekar en önnur veðlán sem bankinn hefur tekið hjá Seðlabanka Íslands, enda er slíkt ekki venja hvorki hjá Straumi né öðrum bönkum."
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















