Hertari reglur á Írlandi
Írsk stjórnvöld stefna að því að taka upp hertari reglur á fjármálamarkaði en verið hafa, til að reyna að stuðla að ábyrgari lánveitingum í bankakerfinu. Meðal annars verður komið á fót sérstakri nefnd á vegum seðlabankans, sem mun hafa víðtæk völd til að grípa inn í lánveitingar fjármálafyrirtækja.
Brian Lenihan, fjármálaráðherra Írlands, segir í samtali við Financial Times, að vandamál lítilla ríkja sé kunningsskapurinn. Markmiðið með hinni nýju nefnd seðlabankans sé að slíta á slík tengsl við lánveitingar á bankakerfinu.
Segir í fréttinni að hinar fyrirhuguðu breytingar á regluverki fjármálaerfisins verði útlistaðar í minnisblaði fjármálaráðherrans til írska þingsins í næstu viku. Kveikjan að þessum breytingum er meðal annars slæm útreið Anglo Irisn bankans að undanförnu. Í desembermánuði síðastliðnum var frá því greint að fyrrverandi forstjóri bankans, Sean Fitzpatrick, sem varð stjórnarformaður hans á árinu 2005, hefði leynt 85 milljóna evra sem hann hefði fengið að láni hjá bankanum með bókhaldsæfingum. Anglo Irish bankinn var þjóðnýttur í janáurmánuði síðastliðnum og hefur starfsemi hans á umliðnum árum verið tekin til gagngerrar skoðunar af yfirvöldum með tilliti til þess hvort lög hafi verið brotin.



















