Sparisjóðum fækki um helming
Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sparisjóða, segir stefnt að því að sex til átta sparisjóðir verði starfandi á landinu. Sýn sambandsins sé sú að 1-2 sjóðir verði starfandi á suðvesturhorni landsins og landshlutasparisjóðirnir verði 4-6 talsins.
Nú eru starfandi sparisjóðir hér á landi fjórtán með mun fleiri útibú. Þegar flestir sparisjóðir voru starfræktir voru þeir 63 talsins, að því er fram kom á fundi með forsvarsmönnum Sambands íslenskra sparisjóða með fréttamönnum í morgun.
Guðjón og Gísli Jafetsson kynntu mikilvægi þess að ríkið kæmi til móts við sparisjóðina við endurreisn íslensks fjármálakerfis. Bentu þeir á að neyðarlögin heimili 20% eiginfjárframlag ríkisins. Miðað við eigin fé sparisjóðanna í árslok 2007 jafngildi 20% framlag um 25 milljörðum króna.
Guðjón benti á að fleira þyrfti að koma til. Eins og aðrar fjármálastofnanir þyrftu sparisjóðir að ná samkomulagi við sína lánadrottna. Þá hvöttu þeir til jafnræðis í aðgerðum stjórnvalda milli sparisjóða og annarra fjármálastofnana sem nú séu undir verndarvæng ríkisins.
Þannig hefur samband íslenskra sparisjóða talað fyrir því að ríkið mæti hugsanlegum umfangsmiklum útlánatöpum og afskriftum á sama hátt hjá sparisjóðum og ríkisbönkum. Einnig að ríkið standi undir „viðbótarframlögum sparisjóðanna í Tryggingasjóð innistæðueigenda vegna loforða stjórnvalda um að taka sér hluta af tjóni erlendra innlánsþega viðskiptabankanna, svo sem vegna Icesave,“ eins og segir í glærukynningu sem dreift var á fundinum.



















