Skipaður forstjóri Straums
Óttar Pálsson hefur verið skipaður forstjóri Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. frá og með deginum í dag. William Fall sagði af sér sem forstjóri Straum þann 9. mars sl. þegar Fjármálaeftirlitið Straum-Burðarás yfir og vék félagsstjórn í heild sinni frá störfum. Óttar var áður framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Straums.
Í gærkvöldi birti Fjármálaeftirlitið ákvörðun um að innlán sem voru í
höfuðstöðvum Straums myndu færast til Íslandsbanka og gefur Straumur út
sérstakt skuldabréf sem endurgjald fyrir hin yfirteknu innlán og er það
tryggt með veði í öllum eignum Straums. Heildarfjárhæð innlána hjá
Straumi nam 70 milljörðum. Íslandsbanki mun þó ekki yfirtaka þau innlán
sem stofnað var til þegar skuldabréfum var breytt í innlán. Í ákvörðun
FME kemur fram að „talsverður hluti“ innlána hjá Straumi hafi orðið til
með þessum hætti.



















