Engin sala á Össuri ákveðin
Höfuðstöðvar Össurar mbl.is
Birst hafa fréttir um mögulegt yfirtökutilboð í Össur hf. Félagið og tilteknir hluthafar þess hafa átt í viðræðum við mögulega kaupendur um kaup á hlut í félaginu, en slík viðskipti hafa ekki verið ákveðin og engar ásættanlegar tillögur hafa borist, að því er segir í yfirlýsingu frá Össuri.
Viðskipti voru stöðvuð með hlutabréf Össurar í Kauphöll Íslands vegna fregna um mögulega sölu á stórum hlut í félaginu.
Samkvæmt heimildum fréttavefjarins AMX undirbýr breskur einkaframtakssjóður tilboð í 36% hlutafjár í Össur hf. Tilboðið verður gert í samráði við William Demant Invest, sem er stærsti hluthafinn í Össuri.
Stjórnendur Össurar eiga ekki von á að viðskipti á þeim nótum sem nefnd voru í fréttinni muni eiga sér stað á næstunni, þótt gera megi ráð fyrir að tilteknir hluthafar muni áfram vinna að sölu hluta sinna í félaginu.
Breski einkaframtakssjóðurinn Montagu LLP, hefur undanfarnar vikur unnið að því að gera formlegt tilboð í 36% hlutafjár í Össuri hf., að því er segir í frétt á vef AMX. Um er að ræða hlutabréf í eigu Eyris Invest, Össurar Kristinssonar, stofnanda fyrirtækisins, og helstu stjórnenda, en þar af er hlutur Eyris tæp 20% og stjórnenda fyrirtækisins 8%.
Samkvæmt heimildum AMX hefur verið unnið að
tilboðsgerðinni í samvinnu við William Demant Invest, sem er stærsti
hluthafinn með liðlega 34%.



















