Viðskipti
| mbl
| 19.3.2009
| 19:11
| Uppfært
19:35
Eyrir hafnaði tilboðum í Össur
Eyrir Invest hefur hafnað tilboðum í hlutafjáreign sína í Össuri eftir viðræður við ótilgreinda einkaframtakssjóði. Viðræður þessar voru ekki að frumkvæði Eyris Invest, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.
Í tilkynningu frá félaginu eru fjárhæðir tilboðanna ekki tilgreindar en þar segir að þau endurspegli ekki þá virðisaukningu sem framundan sé í rekstri Össurar. Þar segir jafnframt að Eyrir muni ekki koma til með að eiga frumkvæði að frekari viðræðum. Um er að ræða fjárfestingarsjóði frá Bretlandi og Norðurlöndunum.
Eyrir Invest hefur verið hluthafi í Össuri og Marel frá árinu 2004 og er nú leiðandi hluthafi í Marel með um 40% hlut og annar stærsti hluthafinn í Össuri með 20% hlut.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















