Viðskipti
| mbl
| 19.3.2009
| 10:12
Gengi Bandaríkjadals veikist um rúm 2%
Engar breytingar hafa orðið á gengi krónunnar það sem af er degi en gengisvísitalan stendur í 198,40 stigum. Hins vegar hefur gengi Bandaríkjadals veikst um rúm 2%, úr 115,90 krónum við lokun gjaldeyrismarkaðar í gær, í 113,31 krónur. Skýrist það af tilkynningu Seðlabanka Bandaríkjanna um að hann muni verja allt að 300 milljörðum dala til að kaupa skuldir.
Gengi pundsins er 161,96 krónur, evran er 152,95 krónur og danska krónan er 20,53 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















