„Kærkomin vaxtalækkun"
Greining Íslandsbanka segir að stýrivaxtalækkunin í morgun sé kærkominn léttir og sérstaklega fyrir þá sem skulda stutt og óverðtryggt. Segir í Morgunkorni Íslandsbanka að greiningardeildir hafi almennt gert ráð fyrir stærra skrefi en spár þeirra voru á bilinu 1,0-2,0 prósent. Markaðurinn virðist hins vegar hafa búist við því að nefndin myndi ákveða að taka öllu stærra skref nú a.m.k. ef marka má viðbrögð á skuldabréfamarkaði í morgun.
„En ávöxtunarkrafa óverðtryggðra skuldabréfa hefur hækkað nokkuð. Ávöxtunarkrafan í ríkisbréfum hækkuðu um 20-40 punkta strax eftir opnun skuldabréfamarkaðarins í morgun. Engin viðskipti hafa hins vegar verið á millibankamarkaði með gjaldeyri í morgun sem sýnir hversu óvirkur sá markaður er,"að því er segir í Morgunkorni.



















