Kröfuhafar reiðubúnir að stefna ríkinu og bönkum
Neyðarlögin voru sett í valdatíð stjórnar Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. mbl.isKristinn
Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is
Erlendir kröfuhafar eru tilbúnir að höfða mál gegn íslenskum stjórnvöldum og viðskiptabönkunum þremur vegna setningar neyðarlaganna í október á síðasta ári.
Lögfræðistofur í New York og London, sem hafa reynslu af svona málaferlum, hafa undirbúið málshöfðunina.
Eftir að skipting milli nýju og gömlu bankanna liggur fyrir verður ákveðið hvort látið verði til skarar skríða. Þetta er að sögn heimildarmanna Morgunblaðsins sem hafa séð drög að stefnunum. Stjórnvöldum og bönkunum verður samkvæmt því ekki einungis stefnt á Íslandi heldur einnig í þeim löndum þar sem bankarnir gáfu út skuldabréf til að fjármagna starfsemi sína.
Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag.



















