Viðskipti stöðvuð með Össur
Höfuðstöðvar Össurar mbl.is
Viðskipti hafa verið stöðvuð með Össur í Kauphöll Íslands þar sem fréttar er að vænta. Samkvæmt heimildum fréttavefjarins AMX undirbýr breskur einkaframtakssjóður tilboð í 36% hlutafjár í Össur hf. Tilboðið verður gert í samráði við William Demant Invest, sem er stærsti hluthafinn í Össuri.
Tilboðið, sem ekki hefur verið lagt fram formlega, er yfir 50% hærra en síðasta markaðsvirði Össurar.
Breski einkaframtakssjóðurinn Montagu LLP, hefur undanfarnar vikur unnið að því að gera formlegt tilboð í 36% hlutafjár í Össuri hf. Um er að ræða hlutabréf í eigu Eyris Invest, Össurar Kristinssonar, stofnanda fyrirtækisins, og helstu stjórnenda, en þar af er hlutur Eyris tæp 20% og stjórnenda fyrirtækisins 8%. Samkvæmt heimildum hefur verið unnið að tilboðsgerðinni í samvinnu við William Demant Invest, sem er stærsti hluthafinn með liðlega 34%.
Forstjóri Eyris, Árni Oddur Þórðarson, vildi ekki tjá sig um málið þegar blaðamaður mbl.is leitaði eftir því en sagði að von væri á tilkynningu frá Össuri fljótlega.



















