Einungis 26 fasteignir seldar
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 13. mars til og með 19. mars 2009 var 26. Þar af voru 18 samningar um eignir í fjölbýli, 3 samningar um sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.114 milljónir króna og meðalupphæð á samning 42,8 milljónir króna. Á sama tíma var engum kaupsamningi þinglýst á Akureyri.
Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli, 2 samningar um sérbýli og 6 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 501 milljón króna og meðalupphæð á samning 41,8 milljónir króna.
Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á
Árborgarsvæðinu. Þar af voru 2 samningar um sérbýli og 1
samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 69
milljónir króna og meðalupphæð á samning 23,1 milljón króna, samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands.



















