Viðskipti
| mbl
| 20.3.2009
| 9:38
Fresta yfirfærslu innlána Straums
Straumur
Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að fresta yfirfærslu innlána Straums – Burðaráss fjárfestingabanka hf. til Íslandsbanka hf. vegna tæknilegra vandkvæða. Um er að ræða flókið verkefni sem er tímafrekara en ætlað var.
Yfirfærsla innlána og útgáfa skulda- og tryggingarskjala skal fara fram eigi síðar en kl. 9.00 föstudaginn 3. apríl 2009, að því er segir á vef FME.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















