Samskiptin gætu skaðast
Rio tinto er eitt af stærstu námu- og álfyrirtækjum heims. HO
Samskipti Ástrala og Kínverja gætu skaðast ef stjórnvöld í Ástralíu samþykkja ekki fyrir sitt leyti 19,5 milljarða dollara fjárfestingu kínverska álfyrirtækisins Chinalco í ástralska námu- og álrisanum Rio Tinto, móðurfélagi álversins í Straumsvík.
Segir í frétt Reuters-fréttastofunnar að áströlsk stjórnvöld séu mjög að vega hugsanleg áhrif þess ef þau koma í veg fyrir fjárfestingu kínverska álfyrirtækisins í Rio Tinto, sem tilkynnt var um í síðata mánuði, á væntanlegan fríverslunarsamning milli Ástrala og Kínverja. Verði ekkert af þeim samningi muni það hugsanlega hafa áhrif á mögulegan hagvöxt í Eyjaálfunni.
Er því haldið fram í frétt Reuters að þrýstingur á fjármálaráðherra Ástralíu, Wayne Swan, fari stöðugt vaxandi. Stjórnmálamenn og hagsmunasamtök ýmiss konar láti heyra hátt í sér. Hafa þeir hæst sem eru á móti hinni fyrirhuguðu fjárfestingu Kínverjanna.



















