Skoða björgun Byggðastofnunar
Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is
„Ríkisstjórnin er með þetta til skoðunar. Við höfum upplýst hana um þetta,“ segir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar.
Eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar er undir því lágmarki sem lög um fjármálafyrirtæki kveða á um. Í ársreikningi stofnunarinnar fyrir árið 2008 kemur fram að eiginfjárhlutfallið sé 2,8%. Samkvæmt lögum má það ekki fara niður fyrir 8%.
Aðalsteinn segir búið að tilkynna þetta til Fjármálaeftirlitsins. Þar fari í gang ferli sem gefur mönnum einhvern frest til að vinna úr þessu. Borðleggjandi sé að ríkið þurfi að leggja stofnuninni til fé eigi hún að starfa áfram á svipuðum forsendum.
Samkvæmt ársreikningi skýrist lækkun eiginfjárhlutfallsins af tvöföldun efnahagsreiknings Byggðastofnunar. Meginástæðan er fall íslensku krónunnar því 75% af útlánasafni stofnunarinnar er í erlendri mynt. Vegna falls íslensku krónunnar var framlag í varasjóð vegna útlána 1,2 milljarðar króna og endurmat á hlutafjáreign 422 milljónir króna.
„Við erum eina fjármálastofnunin sem leggur í afskriftasjóð þegar lán eru veitt,“ útskýrir Aðalsteinn. Vegna falls krónunnar hækka erlendu lánin í krónum. Þá þarf að leggja hærri upphæð í varasjóð, sem nú stendur í 1,7 milljörðum króna.
Hann segir stofnunina hafa hætt að lána í erlendri mynt um mitt síðasta ár. Það hafi verið mikil ásókn í erlend lán. Vextir af erlendum lánum hafi verið lægri.
„Ég reikna ekki með að við veitum erlend lán á þessu ári enda getum við ekki fjármagnað það hvort eð er,“ segir Aðalsteinn.
„Við búumst við erfiðu ári 2009. það verður örugglega erfiðara en 2008.“ Tap Byggðastofnunar í fyrra nam 528 milljónum króna en hafði verið 179 milljónir króna árið 2007.



















