Kaupir íbúðalán af SpKef
Skrifað var í dag undir samning milli Sparisjóðsins í Keflavík og Íbúðalánasjóðs um að sparisjóðurinn selji Íbúðalánasjóði safn skuldabréfa, að fjárhæð um 10 milljarðar króna, tryggt með veði í íbúðarhúsnæði.
Er þetta gert í samræmi við heimild til slíkra kaupa samkvæmt lögum, sem sett voru í vetur um um kaup á skuldabréfum fjármálafyrirtækja.
Íbúðalánasjóður mun greiða 80% af uppreiknuðu virði safnsins með afhendingu íbúðabréfa. Eftirstöðvarnar, eða 20%, er krafa Sparisjóðsins í Keflavík á Íbúðalánasjóð sem mun verða gerð upp að 8 árum liðnum. Til arsins 2010 er Sparisjóðnum í Keflavík óheimilt að lána eða selja íbúðabréfin á eftirmarkaði og einungis heimilt að nota þau í veðlánaviðskiptum við Seðlabanka Íslands.



















