Viðskipti
| mbl
| 23.3.2009
| 8:17
Moderna selur dótturfélag í Lúxemborg
Moderna Finance hefur selt dótturfélag sitt í Lúxemborg, Banque Invik, til Scribona Nordic. Skilanefnd Glitnis tók yfir Moderna Finance fyrr í mánuðinum en félagið var áður í eigu Milestone, félags í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Segir í tilkynningu að salan á Banque Invik sé háð því að fjármálaeftirlitið í Lúxemborg samþykki söluna. Stefnt er að því að ljúka sölunni á öðrum ársfjórðungi.
Með yfirtöku skilanefndar Glitnis á Moderna Finance færðust yfirráð yfir íslenskum dótturfélögum Moderna Finance, Sjóvá, Askar Capital og Avant, til skilanefndar Glitnis.
Samningurinn mun ekki hafa áhrif á daglegan rekstur íslensku félaganna.
Samningurinn hefur ekki áhrif á söluferlið sem var hafið á erlendum eignum Moderna Finance AB.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















