Viðskipti
| mbl
| 23.3.2009
| 17:16
Sparisjóðabankinn fær greiðslustöðvun
Sparisjóðabanki Íslands hefur fengið heimild til greiðslustöðvunar í 12 vikur samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp í dag. Hefur stjórn bankans ráðið Tómas Jónsson, hrl., til að gegna starfi aðstoðarmanns bankans meðan á greiðslustöðvun stendur.
Var beiðni um greiðslustöðvun lögð fram af stjórn Sparisjóðabankans í kjölfar ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins frá 21. mars sl. þar sem FME lagði fyrir stjórn bankans að leita heimildar til greiðslustöðvunar fyrir bankann.
Með heimild til greiðslustöðvunar fær stjórn og stjórnendur bankans svigrúm til að leita áfram lausna á fjárhagslegri endurskipulagningu bankans.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















