Sparisjóðsstjórar funda
Sparisjóðsstjórar víðs vegar um landið ætla að ræða saman nú fyrir hádegi um þá stöðu sem komin er upp eftir að ríkið tók yfir SPRON og Sparisjóðabankann um helgina. Sex sparisjóðir hafa óskað eftir eiginfjárframlagi frá ríkinu vegna erfiðleika í rekstri.
Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sparisjóða, segir þetta símafund þar staða sparisjóðanna verður rædd og framvindan næstu daga.
Í tilkynningu sem barst frá Sambandi íslenskra sparisjóða um helgina sagði: „Í samræmi við reglur sem gefnar voru út 17. desember s.l. um framlag ríkissjóðs til sparisjóða hefur fjármálaráðuneytið þegar móttekið umsóknir frá Sparisjóði Norðfjarðar, Sparisjóði Keflavíkur, Sparisjóði Vestmannaeyja, Sparisjóði Svarfdæla, Sparisjóði Bolungarvíkur og Byr sparisjóð.“



















