Viðskipti
| AFP
| 23.3.2009
| 8:33
Vilja eignast Czech Airlines
Fransk-hollenska flugfélagið Air France-KLM hefur lýst yfir áhuga á að yfirtaka tékkneska flugfélagið Czech Airlines en tékkneska ríkið er að einkavæða félagið. Í tilkynningu frá Air France-KLM kemur fram að félagið hafi í dag lýst yfir áhuga á að eignast félagið en yfirlýsingin er óskuldbindandi.
Ekki er gert ráð fyrir því að félagið muni leggja fram formlegt kauptilboð fyrr en í júní þegar fyrir liggur greining á Czech Airlines.
Í byrjun febrúar óskuðu stjórnvöld í Tékklandi eftir tilboðum í hlut ríkisins, 91,51% hlut, í Czech Airlines. Flugfélagið er hluti af markaðsbandalagi nokkurra flugfélaga, Sky Team, en bæði Air France-KLM og rússneska flugfélagið Aeroflot, sem einnig hefur lýst yfir áhuga á að eignast tékkneska félagið, eru í bandalaginu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















