Vill ræða yfirtöku á hluta af útibúaneti SPRON
Margeir segir SPRON njóta mikillar viðskiptavildar og þar sé gott starfsfólk. Hægt verði að bjarga einhverjum störfum gangi þetta eftir
„Það er líka mikilvægt að fleiri en ríkið séu í þessum rekstri hér á landi. Þetta gæti því verið jákvætt skref út frá samkeppnissjónarmiði, að fólk geti sótt viðskiptabankaþjónustu til annarra en ríkisbankanna,“ segir Margeir.
MP banki hefur ekki þurft á fyrirgreiðslu frá ríkinu að halda í kjölfar bankahrunsins eins og flest fjármálafyrirtæki. Hagnaður síðasta árs var 860 milljónir króna. Þá var búið að mæta allri afskriftarþörf sem hrun fjármálakerfisins hafði í för með sér að mati stjórnenda bankans.
„Viðbrögðin sem við fengum voru jákvæð að okkar mati,“ segir Margeir. Afar mikilvægt hafi verið að tryggja hagsmuni sparifjáreigenda með snurðulausum flutningi innlána til Kaupþings. Nú verði skoðað hvað verður um aðrar eignir SPRON og hvort MP banki geti tekið hluta af þeim yfir. bjorgvin@mbl.is



















