Viðskipti
| mbl
| 24.3.2009
| 10:19
| Uppfært
10:55
Deutsche Bank þarf jafnvel að fækka fólki
Stærsti banki Þýskalands, Deutsche Bank, þarf jafnvel að fækka starfsfólki vegna fjármálakreppunnar. Þetta kemur fram í ársskýrslu bankans. Forstjóri bankans, Josef Ackermann, segir að bankinn sé hins vegar vel í stakk búinn til að taka á kreppunni og að afkoma hans í byrjun árs sé vel við unandi.
Ackermann afþakkaði bónusgreiðslur fyrri síðasta ár og námu tekjur hans 1,4 milljónum evra á síðasta ári. Er það tíundi hluti af tekjum hans árið 2007.
Tap Deutsche Bank á síðasta ári nam 3,9 milljörðum evra og er þetta fyrsta árið sem bankinn er rekinn með tapi frá því núverandi rekstrarskipulagi var komið á árið 1956.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















