Viðskipti
| Morgunblaðið
| 24.3.2009
| 5:30
| Uppfært
9:05
Vilja ekki gefa upp kjör lána til VBS og Saga
Fjármálaráðuneytið neitar að gefa upp á hvaða kjörum samið var við Saga Capital og VBS fjárfestingarbanka, en samningar hafa náðst milli ríkissjóðs og beggja fyrirtækja vegna skuldar sem varð til í svokölluðum endurhverfum viðskiptum fyrirtækjanna við Seðlabanka Íslands.
Saga Capital skuldaði ríkissjóði 15 milljarða króna og VBS skuldaði 26 milljarða, samkvæmt upplýsingum Mbl. Samningarnir fela í sér að fyrirtækin greiða skuldirnar til baka á sjö árum. „Með samningnum er tryggt að ríkissjóður og þar með skattgreiðendur fái að fullu greitt,“ segir í tilkynningu frá VBS. Þórhallur Arason, sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu, segir að aðeins tveir kostir hefðu verið í stöðunni; að ganga að fyrirtækjunum þar sem þau gátu ekki veitt frekari veðtryggingar vegna skuldanna eða að reyna að semja um skuldirnar. Hann segir að ríkissjóður myndi veikja samningsstöðu sína gagnvart öðrum með því að gefa upp vaxtakjör eða önnur ákvæði samninganna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















