Moody's lækkar lánshæfiseinkunn danskra banka
Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's hefur lækkað lánshæfiseinkunn allra stærstu bankanna í Danmörku, þar á meðal FIH, sem var dótturfélag Kaupþings en er nú í eigu íslenska ríkisins. Ástæða lækkunarinnar er sú að lánardrottnar bankanna eiga ekki á vísan að róa ef til þess kemur að bankarnir falla og danska ríkið þarf að grípa inn í reksturinn.
Er m.a. vísað til þess sem gerðist þegar Roskilde Bank og nokkrir minni bankar lentu í vandræðum á síðasta ári en þá lentu fjárfestar, sem áttu skuldabréf bankans aftast í kröfuröðinni.
Um er að ræða Danske Bank, Jyske Bank, Spar Nord Bank, Sydbank og FIH.
M.a. var einkunn FIH fyrir langtímaskuldir lækkuð úr A2 í Ba3 með neikvæðum horfum. Þá lækkaði einkunn bankans fyrir fjárhagslegan styrk úr C í D+.
Moody's vísar m.a. til þess að mjög hafi dregið úr hagnaði FIH á síðasta ári og væntanlega verði svo áfram. Hagnaður FIH nam 184 milljónum danskra króna árið 2008 en var 1,1 milljarður árið 2007.
Moody's hrósar þó FIH fyrir að hafa endurskipulagt starfsemina og lokað óarðbærum deildum.



















