Viðskipti
| Morgunblaðið
| 25.3.2009
| 5:30
| Uppfært
15.12.2009
15:08
Skuldirnar lækka um 8,4 milljarða
Með lækkun vísitölu neysluverðs um 0,6% í marsmánuði lækka verðtryggðar skuldir heimilanna um 8,4 milljarða króna, miðað við að heildarskuldir séu um 1.400 milljarðar króna. Ranghermt er í Morgunblaðinu í dag að lækkunin komi til um næstu mánaðamót, vísitala neysluverðs í mars gildir til verðtryggingar í maí nk.
Hagstofan birti í gær mælingu á vísitölunni. Ársverðbólga fór úr 17,6% í febúar í 15,2% og er þetta mesta lækkun milli mánaða í 23 ár, eða síðan í mars árið 1986. Mestu skiptir lækkun kostnaðar vegna eigin húsnæðis um 5,1%, aðallega lækkað markaðsverð en einhver áhrif eru af lækkun raunvaxta. Einnig varð lækkun á eldsneyti, matvörum og flugfargjöldum. Útsölum er að mestu lokið og hækkun varð á fötum og skóm. Höfuðstóll af verðtryggðu íbúðaláni upp á 10 milljónir króna lækkar um 60 þúsund krónur, svo dæmi sé tekið. Reiknað er með áframhaldandi lækkun verðbólgunnar og spáir hagdeild ASÍ því að í byrjun næsta árs geti verðbólgumarkmiðum Seðlabankans verið náð, en þau eru 2,5%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















