76 fyrirtæki gjaldþrota í febrúar

Í febrúar 2009 voru 76 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 56 fyrirtæki í febrúar 2008, sem jafngildir tæplega 36% aukningu á milli ára. Á vef Hagstofunnar segir að flest gjaldþrot hafi verið í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 19 og 15 í heild- og smásöluverslun, viðgerðum á vélknúnum ökutækjum.

Fyrstu tvo mánuði ársins 2009 er fjöldi gjaldþrota 149 en fyrstu tvo mánuði ársins 2008 voru gjaldþrotin 97 sem jafngildir tæplega 54% aukningu milli ára.

Frétt Hagstofunnar

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Time Warner

Time Warner gleður fjárfesta

16:04 Hagnaður bandaríska fjölmiðlafyrirtækisins Time Warner jókst um 0,5% á fjórða ársfjórðungi og nam 233 milljónum Bandaríkjadala, 28,5 milljörðum króna. Meira »

Hlutabréfavísitölur á uppleið

15:53 Helstu hlutabréfavísitölur beggja vegna Atlantsála hafa hækkað í dag vegna væntinga um að samkomulag sé að nást í Grikklandi um skuldir ríkissjóðs. Meira »

Veltuaukningin 6,8%

Íslendingar notuðu Visa kortin sín mun meira í janúar í ár en í fyrra í ...
15:39 Veltuaukning á Visa kreditkortaviðskiptum var 6,8% í janúar borið saman við sama mánuð í fyrra. Notkunin innanlands jókst um 5,6% en í útlöndum var veltuaukningin tæp 17,4%. Meira »

Íhugaði að segja af sér

Forstjóri Royal Bank of Scotland, Stephen Hester
12:42 Stephen Hester, forstjóri breska bankans Royal Bank of Scotland, viðurkennir að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því fyrirfram hversu mikil reiði myndi brjótast út vegna fyrirhugaðra bónusgreiðslna hans og segist hann hafa íhugað að segja af sér. Meira »

Nýr tónn hjá nefndinni

Seðlabanki Íslands
12:21 Greining Íslandsbanka segir að nú kveði við nýjan tón hjá peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands en nefndin telur að ef verðbólguhorfur batni ekki þurfi að hækka nafnvexti. Meira »

Veltuaukningin 73,9%

Fasteignasala jókst á síðasta ári á höfuðborgarsvæðinu
11:35 Alls var 372 kaupsamningum um fasteignir þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í janúar. Heildarvelta nam 11 milljörðum króna. Er þetta veltuaukning um 73,9% á milli ára. Meira »

Ákvörðunin kom skemmtilega á óvart

Már Guðmundsson seðlabankastjóri
15:16 Greiningardeild Arion-banka segir að ákvörðun Seðlabanka Íslands um að halda stýrivöxtum óbreyttum hafi komið deildinni skemmtilega á óvart en deildin hafði spáð stýrivaxtahækkun. Meira »

Mikil viðbrögð á markaði

12:24 Mikil viðbrögð hafi verið á skuldabréfamarkaði í morgun í kjölfar tilkynningar peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um óbreytta vexti, samkvæmt upplýsingum frá greiningu Íslandsbanka. Meira »

Vextir miklu hærri hér

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ
11:59 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að því beri að fagna að Seðlabankinn hafi ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum en á sama tíma skjóti það skökku við að stýrivextir á Íslandi séu 4,5% hærri heldur en í helstu viðskiptalöndum. Meira »

Níu evruríki vilja skatt á fjármagnsflutninga

10:39 Hópur níu evruríkja undir forystu Frakklands og Þýskalands hafa óskað eftir því við Dani, sem fara nú með forsætið innan Evrópusambandsins, að flýta áætlunum um sérstakan skatt á fjármagnsflutninga. Meira »

Hagvaxtarspár á niðurleið

10:09 Spár um hagvöxt á þessu ári hafa verið lækkaðar í flestum viðskiptalöndum Íslands, að Bandaríkjunum og Japan undanskildum. Efnahags- og þróunarstofnunin (OECD) spáir 0,8% hagvexti á árinu í helstu viðskiptalöndum Íslands. Meira »

Verðbólgan veldur áhyggjum

Vilhjálmur Egilsson
11:22 Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að verðbólgan valdi samtökunum áhyggjum líkt og Seðlabankanum en útlit er fyrir að verðbólgan haldist áfram mikil á Íslandi. Meira »

Einkaneyslan helsti drifkrafturinn

Seðlabankinn spáir því að einkaneysla verði áfram töluverð á Íslandi
10:23 Seðlabankinn gerir ráð fyrir að einkaneysla verði áfram einn helsti helstu drifkraftur efnahagsbatans líkt og á undanförnum misserum. Til loka árs 2014 spáir Seðlabankinn því að einkaneysla muni vaxa um 2½% að meðaltali á ári. Meira »

Útlit fyrir 7% lækkun álverðs

Alcoa Fjarðaál
10:07 Áætlað er að álverð verði um 7% lægra að meðaltali á þessu ári en í fyrra en að verð á sjávarafurðum í erlendum gjaldmiðlum haldi áfram að hækka. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir