Viðskipti
| mbl
| 26.3.2009
| 10:39
Bjóða í SPRON-eignir í dag
Skilanefnd SPRON vinnur að því að koma einstökum einingum sparisjóðsins í verð.
Frestur til að skila inn tilboðum í stærri rekstrareiningar og eignir SPRON rennur út klukkan fjögur í dag. Hlynur Jónsson, formaður skilanefndar, segir að þá liggi ljóst fyrir hve mörg tilboð bárust í tilteknar einingar.
Yfir tíu aðilar lýstu fyrr í vikunni yfir áhuga á að gera tilboð í þessar eignir, eins og Netbankann, verðbréfaþjónustu, SPRON factoring og útibú. Hlynur sagði að nokkur hundruð tölvupóstar hefðu borist með fyrirspurnum og viljayfirlýsingu um þátttöku. Eftir klukkan fjögur verður svo ljóst hversu margir fylgdu áhuganum eftir með tilboði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















