Bjuggu sjálfir til virði bréfa

stækka

mbl.is

Morgunblaðið Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur haft mögulega markaðsmisnotkun Kaupþings, Landsbankans og Glitnis til skoðunar, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.

Hin meinta markaðsmisnotkun fór fram með mismunandi hætti í hverjum banka fyrir sig en snerist þó hjá þeim öllum um að hafa áhrif á verð hlutabréfa í þeim sjálfum.

Sýndarviðskipti hækka virðið

Bankarnir gátu stuðlað að slíkum sýndarviðskiptum með því að lána starfsmönnum sínum, tengdum aðilum eða almennum þátttakendum á hlutabréfamarkaði fjármuni til þess að kaupa bréf í bönkunum sjálfum. Veð fyrir lánunum voru oftast nær bréfin sjálf. Með þessum aðferðum eru bankarnir taldir hafa haft veruleg áhrif á verðmyndun eigin bréfa á markaði en á sama tíma staðið sjálfir að stórum hluta af heildarveltu með bréf sín.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa eftirlitsaðilar verið með mögulega markaðsmisnotkun ákveðinna félaga til skoðunar í töluverðan tíma. Fjölmörg dæmi hafa hins vegar uppgötvast i kjölfar bankahrunsins þar sem bankarnir lánuðu félögum eða einstaklingum fjármuni til að kaupa bréf í sjálfum sér án annarra veða en í bréfunum sjálfum. Stím ehf. var til dæmis sérstaklega sett á fót til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group, stærsta eiganda Glitnis, fyrir tæpa 25 milljarða króna í nóvember 2007. Glitnir seldi bréfin og lánaði Stím um 20 milljarða króna til kaupanna.

Landsbankinn veitti Imon ehf., félagi í eigu Magnúsar Ármann, hátt lán til að kaupa bréf í bankanum sjálfum þremur dögum áður en FME tók yfir stjórn bankans í október síðastliðnum. Heildarsumvif þeirra viðskipta voru á fimmta milljarð króna og einu veðin voru í bréfunum sjálfum.

Þá lánaði Kaupþing Sjeik Mohamed Bin Khalifa Al-Thani samtals tæpa 26 milljarða króna til að kaupa í bankanum sjálfum í gegnum félag sem kallast Q Iceland Finance ehf. Kaupþing banki átti sjálfur hlutabréfin sem verið var að selja.

Sjöfaldaðist frá 2003

Úrvalsvísitala íslensku kauphallarinnar, sem lýsir hækkun og lækkun á verði hlutabréfa þeirra félaga sem henni tilheyra, náði hæsta gildi 18. júlí 2007 þegar hún stóð í 9.016 stigum. Hún hafði þá sjöfaldast frá áramótum ársins 2003, en það var árið sem ríkisbankarnir komust í einkaeigu. Þau fyrirtæki sem aðild áttu að úrvalsvísitölunni voru þau sem höfðu mestu veltuna í hlutabréfaviðskiptum, þar á meðal allir stóru bankarnir þrír.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Innsýn í reksturinn

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir