Jafnvægi að komast á í Kína
Hagvöxtur hefur verið mikill í Kína á umliðnum árum en nokkuð hefur dregtið úr honum að undanförnu eins og víðast hvar annars staðar í heiminum. STRINGER SHANGHAI
Tekist hefur að koma á stöðugleika í kínversku efnahagslífi eftir nokkuð hraðan samdrátt að undanförnu, með samblandi af auknum ríkisútgjöldum og stuðningsaðgerðum við efnahagslífið. Þetta segir bankastjóri kínverska seðlabankans, Zhou Xiaochuan, í grein sem birt er á heimasíðu bankans á netinu.
Segir seðlabankastjórinn, að kínverska efnahagslífið, sem er það þriðja stærsta í heiminum, gegni mikilvægu hlutverki í að koma á stöðugleika í fjármálalífi heimsins.
Kínversk stjórnvöld hafa varið fjögur þúsund milljörðum juan, jafnvirði um 67 þúsund milljörðum íslenskra króna, til að örva efnahagslífið í landinu. Þá hafa stýrivextir seðlabankans verið lækkaðir fimm sinnum frá því i september á síðasta ári. Segi Zhou í grein sinni á heimasíðu seðlabankans, að helstu hagvísar bendi til þess að efnahagslífið í landinu sé að ná jafnvægi. það gefi til kynna að stjórnvöld hafi brugðist skjótt við og af krafti, í samanburði við önnur helstu hagkerfi heimsins.



















