Ólafsfell gjaldþrota og engar eignir til
Beiðni Ólafsfells, eignarhaldsfélags Björgólfs Guðmundssonar, um gjaldþrotaskipti var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og var Jóhannes Ásgeirsson hæstaréttarlögmaður skipaður skiptastjóri. Ólafsfell er nánast eignalaust með öllu og því á Jóhannes ekki von á því að skiptin taki langan tíma.
Eignir Ólafsfells, sem færast nú til þrotabúsins, eru eignarhlutur í Hansa, sem á knattspyrnufélagið West Ham, en Hansa hefur verið veitt greiðslustöðvun til 8. júní næstkomandi og eignarhlutur í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins og mbl.is, sem verður í reynd ekki til þegar hlutafé verður fært niður þegar nýir eigendur taka við Árvakri. Aðrar eignir þrotabúsins er eignarhlutur í Forsíðu ehf, sem er annað eignarhaldsfélag í eigu Björgólfs sem einnig hélt utan um eignarhlut í Árvakri og eignarhaldsfélagið Valamed ehf.
Þrotabúið á jafnframt kröfur á Árvakur, Eddu Printing og Eddu útgáfu og er um smávægilegar upphæðir að ræða.
„Aðaleignin er eignarhlutur í Árvakri sem er orðinn að núlli. [...] Ég vænti þess að þetta taki ekki langan tíma, því það er alveg ljóst að þetta er eignalaust félag,“ segir Jóhannes.



















