Mikill áhugi á Netbankanum
Sextán aðilar lýstu yfir áhuga á að kaupa einstakar einingar sem tilheyrðu SPRON. Hlynur Jónsson, formaður skilanefndar SPRON, segir að færri en tíu þeirra verði kallaðir á fund skilanefndir í dag til að kanna grundvöll þess þeir skili inn bindandi tilboðum. Margir ásælast Netbankann, nb.is.
Frestur til að lýsa yfir áhugi í eignir og rekstrareiningar SPRON rann út klukkan fjögur í gær. Hlynur segir alla sextán aðilana hafa skilað inn óskuldbindandi tilboðum í mismunandi eignir. Tilboð hafi borist í Netbankann, SPRON verðbréf og útibú sem dæmi. Bíða á með að selja SPRON factoring. Ekki liggur á þeirri sölu að mati skilanefndarinnar.
Hlynur segir að færri en tíu aðilar halda áfram í þessu ferli og koma á fund skilanefndar í dag. Þar verður málið kynnt nánar, bæði af hendi nefndarinnar og hugsanlegra bjóðenda. Spurður hvað felist til dæmis í sölunni á SPRON verðbréfum segir Hlynur til dæmis um að ræða tölvukerfi en einnig verði horft til þess hvort starfsmenn SPRON fái áframhaldandi vinnu.
Formaður skilanefndar segir að unnið verði að málinu í dag og um helgina. Engin tímamörk hafi verið sett hvenær niðurstaða liggi fyrir. Hins vegar gæti niðurstaða verið komin á mánudag.



















