Neita ekki rannsókn
thordur@mbl.is
Heimildir Morgunblaðsins herma að slík skoðun hafi staðið yfir í nokkurn tíma. Blaðið sendi FME fyrirspurn um hversu lengi rannsóknin hefði staðið yfir og hvort að einhverjum hluta hennar hefði verið vísað til sérstaks saksóknara um efnahagshrunið.
Í svari FME segir að „Fjármálaeftirlitinu eru sett ákveðin takmörk í lögum sem hafa það meðal annars í för með sér að ekki er unnt að gefa þér svar við því hvort Fjármálaeftirlitið sé að rannsaka meinta markaðsmisnotkun íslensku bankanna fyrir efnahagshrunið eða ekki.“
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins felst hin meinta markaðsmisnotkun í því að hafa áhrif á verð hlutabréfa í bönkunum sjálfum. Bankarnir gátu stuðlað að sýndarviðskiptum með því að lána starfsmönnum sínum, tengdum aðilum eða almennum þátttakendum á hlutabréfamarkaði fjármuni til þess að kaupa bréf í bönkunum sjálfum. Veð fyrir lánunum voru oftast nær bréfin sjálf.



















