Viðskipti
| mbl
| 28.3.2009
| 9:27
Gengi bréfa deCODE hækkaði um 15%
Gengi hlutabréfa deCODE, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, hækkaði um 15% á Nasdaq verðbréfamarkaðnum á Wall Street í gærkvöldi eftir að hafa verið óbreytt fyrri hluta vikunnar. Gengi bréfanna er nú skráð 23 sent á hlut. Hlutabréfavísitölur lækkuðu hins vegar almennt á Wall Strett: Dow Jones um 1,87%, Nasdaq um 2,64% og S&P um 2,03%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















