Krónan veiktist um 0,95%

Krónan veiktist.
Krónan veiktist. mbl.is/Júlíus

Krónan veiktist lítillega í viðskiptum dagsins og stendur gengisvísitalan núna í 212 stigum sléttum, krónan veiktist því um 0,95%, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka. Þessi veiking skýrist af auknu útflæði gjaldeyris.

Fyrir tveimur vikum síðan veiktist krónan þegar greiddir voru vextir af nokkrum flokkum ríkisskuldabréfa, en vextir eru undanþegnir höftum samkvæmt reglum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrismál. Því hærri sem stýrivextir Seðlabankans eru, því meira er útflæði vegna vaxtagreiðslna sem stuðlar að veikingu krónunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK