Ströng skilyrði fyrir aðstoð
Bandaríkjastjórn hefur sett bandarísku bílaframleiðendunum General Motors og Chrysler ströng skilyrði ef þeir eiga að fá frekari opinbera fjárhagsaðstoð. General Motors fær tveggja mánaða frest til að leggja fram nýja rekstraráætlun og Chyrsler fær mánuð til að ganga frá samstarfssamningi við Fiat.
Bandaríska blaðið New York Times segir frá þessu á fréttavef sínum í dag en Barack Obama, Bandaríkjaforseti, mun síðdegis skýra opinberlega frá ákvörðunum, sem gripið verður til vegna rekstrarerfiðleika bandarískra bílaframleiðenda.
Félögin tvö hafa þegar fengið rúmlega 17 milljarða dala úr opinberum sjóðum en hafa áoskað eftir rúmleg 21 milljarðs dala framlagi til viðbótar. Sérstakur stýrihópur hefur farið yfir rekstaráætlanir, sem félögin hafa skilað og komist að þeirri niðurstöðu að þær séu ekki raunhæfar.
New York Times segir, að Chrysler fái ekki frekari ríkisaðstoð ef ekki verður af samkomulagi við ítalska bílaframleiðandann Fiat í næsta mánuði. General Motors mun hins vegar fá áframhaldandi aðstoð næstu tvo mánuði eða þar til félagið á að skila nýrri rekstaráætlun.
Rick Wagoner, forstjóri General Motors, sagði í gær af sér störfum að kröfu Bandaríkjastjórnar. New York Times segir, að þetta hafi komið bandaríska viðskiptalífinu í opna skjöldu en undirstriki að Obama forseti ætli að hafa virk afskipti af þeim fyrirtækjum, sem fá opinbera aðstoð. Segir blaðið, að ríkisafskipti af þessu tagi í viðskiptalífinu hafi ekki sést í Bandaríkjunum frá kreppunni miklu á fjórða áratug síðustu aldar.



















