Tilkynnt í dag hver eignast SPRON
Starfsmenn SPRON yfirgefa starfsstöðvar sínar í síðasta skipti. Margir þeirra höfðu unnið áratugum saman hjá bankanum. mbl.is/Árni Sæberg
thorbjorn@mbl.isSkilanefnd SPRON mun í dag tilkynna um samninga um kaup á SPRON vörumerkinu, útibúanetinu og Netbankanum, samkvæmt upplýsingum mbl.is
Meðal þeirra sem lýst hafa yfir áhuga á Netbankanum eru VBS fjárfestingarbanki og MP banki.Fyrir helgi höfðu sextán aðilar lýst yfir áhuga á að kaupa einstakar einingar sem tilheyrðu SPRON. Meðal þeirra er færeyski bankinn Føroya Bank. „Það er mikill áhugi á eignum SPRON," sagði Hlynur Jónsson, formaður skilanefndar SPRON í samtali við Morgunblaðið á laugardag. „Og það verða frekari viðræður í dag [föstudag] til að fá betri mynd af þessu. Okkur þykir þetta líta vel út. Við vonumst til að bindandi tilboð liggi fyrir á mánudag, með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki stjórnvalda."
Vilja halda vörumerkinu á lífi
MP banki vill halda vörumerki SPRON og hluta útibúanetsins á lífi. Bankinn vill jafnframt ráða hluta þess starfsfólks sem missti vinnuna til baka. Bankinn vill fjárfesta í viðskiptavildinni, en SPRON nýtur mikillar velvildar margra viðskiptavina og hefur mælst hátt í Íslensku ánægjuvoginni, sem mælir afstöðu almennings til fyrirtækja.
Allar innstæður hafa færst til Nýja Kaupþings og hefur átt sér stað fullkomin eignayfirfærsla innstæðna. MP banki fékk á síðasta ári viðskiptabankaleyfi og sér sóknarfæri í þeirri stöðu sem nú er uppi á íslenskum viðskiptabankamarkaði.
Ótrúlegt siðleysi
Stjórnarformaður MP banka, sagði í síðustu viku að það bæri vott um „ótrúlegt siðleysi“ að VBS fjárfestingarbanki hafi sett sig í samband við skilanefnd SPRON til þess að hefja viðræður um kaup á Netbankanum, nb.is, dótturfélagi SPRON, þegar blekið var vart þornað á samningi VBS við ríkissjóð vegna 26 milljarða skuldar sem varð til í svokölluðum endurhverfum viðskiptum VBS við Seðlabankann.



















