Ekkert verðmat á eignum SPRON
Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.isÚtlána- og greiðsluþjónusta þeirra viðskiptavina SPRON sem færðust yfir til Kaupþings hefur ekki færst yfir þar sem ekki hefur samist við skilanefnd SPRON um að Kaupþing banki taki þessa þjónustu yfir.
Í yfirlýsingu sem Kaupþing sendi frá sér í dag segir að allt frá því að beiðnin kom frá stjórnvöldum um að Kaupþing tæki við innlánum viðskiptavina SPRON hefur bankanum verið umhugað að viðskiptavinir SPRON yrðu fyrir sem minnstum óþægindum. Þjónustuver Kaupþings var opnað að morgni sunnudagsins 22. mars til að veita viðskiptavinum SPRON upplýsingar og innstæðurnar fluttust yfir samdægurs. Viðskiptavinir SPRON höfðu því strax aðgengi að debet-og kreditkortum sínum, innstæðum og netbönkum SPRON og Kaupþings.
Skilanefnd SPRON skrifaði undir þjónustusamning vegna vegna útlána viðskiptavina SPRON miðvikudaginn 25. mars. Aðfararnótt fimmtudags færðust útlánin yfir til Nýja Kaupþings.
Segja skilanefndina bera ábyrgð
Í yfirlýsingu frá Kaupþingi segir að skilanefnd SPRON hafi ekki viljað láta af hendi nauðsynleg gögn til þess að Kaupþing gæti sinnt útlánaþjónustu fyrir viðskiptavini SPRON og þetta hafi valdið viðskiptavinum SPRON óþægindum.
Að kröfu skilanefndarinnar færðist þjónusta vegna útlána viðskiptavina SPRON aftur til nefndarinnar. Það gerðist síðastliðna nótt, að því er segir í yfirlýsingunni. Viðskiptavinum SPRON er því bent á að leita til skilanefndar SPRON vegna upplýsinga um útlán. Kaupþing segir að skilanefnd SPRON beri „að fullu ábyrgð á þeirri óvissu sem nú ríkir hjá viðskiptavinum SPRON.“
80 milljarðar í formi innstæðna
Þegar innstæður allra viðskiptavina SPRON voru færðar yfir til Kaupþings, eftir að FME tók sparisjóðinn yfir, samtals rúmir 80 milljarðar króna, var gefið út skuldabréf sem tryggt var með veði í öllum eignum SPRON. Ekki hefur verið gengið frá skuldabréfinu með formlegum hætti.
Gremja Kaupþingsmanna vegna sölu hluta útibúanets SPRON og Netbankans, nb.is snýst um að með sölunni hafi skilanefndin verið að selja eignir sem voru veðsettar Kaupþingi þegar innstæður viðskiptavina SPRON voru færðar, en eins og kom fram í Morgunblaðinu í dag lagðist Kaupþing gegn sölunni. Samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi var þó engri lögsókn hótað, en Morgunblaðið hefur það eftir staðfestum heimildum að það sé raunin.
Þær 800 milljónir sem MP banki greiddi fyrir hluta útibúanets SPRON, vörumerki SPRON og Netbankann nb.is munu ganga upp í skuldbindingar til Kaupþings.
Þeir lögfræðingar sem rætt var við segja að skilanefnd SPRON hafi ekki heimild til þess að ráðstafa eignum SPRON án samþykkis FME og að FME þurfi að klára sín mál því þeir „eru bundnir í báða skó varðandi veðsettar eignir Kaupþings,“ eins og einn orðaði það. Kaupþing þyrfti því að samþykkja söluna, því það væri meginregla að ekki væri hægt að ráðstafa veðsettum eignum nema með samþykki veðhafans, sem er í þessu tilviki Kaupþing. Ræða þyrfti við Kaupþing hvað teldust fullnægjandi tryggingar í þessu samhengi. Í því ljósi væru áhyggjur stjórnenda Kaupþings skiljanlegar.
Samkomulagið sem MP banki gerði við skilanefnd SPRON er gert með fyrirvara um áðurnefnt samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppnisstofnunar. Jafnframt er fyrirvari um að náist að endursemja við leigusala húsnæðis þeirra útibúa sem tekin voru yfir.
Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, sagði í hádegisfréttum Rúv í dag að hann fagnaði því að skilanefnd SPRON hefði komið eignum í verð. Hann sagðist ekki hafa áhyggjur af því að aðrar eignir dygðu ekki til. Það væri vel viðráðanlegt að sjá til þess að Kaupþing fengi nægar eignir á móti þessum innstæðum.
Ekkert verðmat á undirliggjandi eignum
Ekkert verðmat hefur farið fram á undirliggjandi eignum SPRON, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Það er því háð nokkurri óvissu hversu verðmætar þær eignir eru sem nú hafa verið veðsettar Kaupþingi.
Allar innstæður viðskiptavina SPRON hafa verið færðar yfir til Kaupþings. Greiðsluþjónusta og þjónusta vegna útlána hafa ekki færst yfir, því er erfiðleikum bundið fyrir Kaupþing að þjónusta hina nýju viðskiptavini sína til fulls á meðan þessi mál hafa ekki verið leyst.
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Kaupþings, segist bjóða gamla viðskiptavini SPRON velkomna og segist vonast til þess að bankinn muni njóta viðskipta við þá um ókomna tíð.
Með kaupunum á hluta útibúanets SPRON hefur MP banki tryggt 45 störf í útibúum SPRON á Seltjarnarnesi, á Skólavörðustíg og í Borgartúni. Jafnframt er ekki loku fyrir það skotið að fleiri starfsmenn verði ráðnir. MP banki þykir hafa sýnt ráðdeild í rekstri en á síðasta ári skilaði félagið 860 milljóna króna hagnaði eftir skatta á sama tíma og fárviðri geisaði á fjármálamörkuðum.





















