Viðskipti
| mbl
| 31.3.2009
| 7:16
Mikið tap hjá Fortisbanka
Mikið tap var á rekstri belgísk-hollenska bankanum Fortis á síðasta ári. Alls nam tapið 28 milljörðum evra, jafnvirði 4500 milljörðum króna. Fjögurra milljarða evra hagnaður var á árinu 2007.
Í tilkynningu frá bankanum segir, að tapið stafi að mestu leyti af kostnaði við að leggja niður starfsemi. Bankanum var skipt upp í október í kjölfar alþjóðlegu fjármálakreppunnar. Hollenska ríkið yfirtók bankastarfsemina þar í landi og belgíska ríkið tók yfir eignir bankans í Belgíu og seldi þær til franska bankans BNP Paribas. Sú sala sætti mikilli gagnrýni hluthafa sem reyna nú að fá henni rift.
Sex milljarða evra hagnaður var af tryggingastarfsemi Fortis í Belgíu og rekstur á alþjóðlegri tryggingastarfsemi var í járnum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















