Ragnar Z: Ekkert ólöglegt
Ragnar Zophonías Guðjónsson, t.v forstjóri Byrs sparisjóðs. Með honum á myndinni er Magnús Ægir Magnússon, fyrrverandi sparisjóðsstjóri, en FME vill líka fá afrit af tölvupóstunum hans. mbl.is/Árni Sæberg
thorbjorn@mbl.isRagnar Zophonías Guðjónsson, forstjóri Byrs sparisjóðs, segist ekkert ólöglegt hafa gert, en í DV í dag er sagt frá því að FME hafi óskað eftir gögnum varðandi viðskipti hans með stofnfjárbréf í Byr.
Ragnar Zophonías segist jafnframt ekki sæta sérstakri rannsókn af hálfu Fjármálaeftirlitsins, en sagt er frá því að FME hafi óskað eftir gögnum varðandi viðskipti eignarhaldsfélagsins Húnahorns ehf., sem er í eigu hans og nokkurra stjórnenda Byrs, með stofnfjárbréf í sparisjóðnum.
Fjármálaeftirlitið sendi Byr bréf hinn 25. mars síðastliðinn þar sem óskað er eftir afritum af öllum tölvupóstum nokkurra starfsmanna Byrs frá 1. september síðastliðnum til þessa dags. Þetta bréf er birt í DV í dag. Um er að ræða tölvupósta Ragnars Z, Magnúsar Ægis Magnússonar, Sighvats Sigfússonar, Auðar Örnu Eiríksdóttur, Gunnars Árnasonar og Atla Arnar Jónssonar, en þau eru eigendur Húnahorns, að undanskildum Magnúsi, sem er fyrrverandi sparisjóðsstjóri. Tilgangurinn er rannsókn FME á viðskiptum þeirra með stofnfjárbréf í sjóðnum og lánveitingar þeim tengdum og er orðið „rannsókn“ notað í bréfinu. Ragnar segir að Húnahorn hafi aldrei fengið lán hjá Byr fyrir stofnfjáraukningu.
Fjármálaeftirlitið vill fá upplýsingar um allar fyrirgreiðslur til Húnahorns ehf., þar á meðal um lánasamninga og vinnuskjöl. Einnig biður FME um sambærileg gögn varðandi viðskipti Byrs við Exeter Holding og er sagt í DV að það sé í eigu Ágústar Sindra Karlssonar, lögfræðings, en hann er fyrrverandi starfsmaður MP banka. Hið rétta er að það er í 100% eigu eignarhaldsfélagsins Arkea ehf., sem er svo aftur í eigu Agústar Sindra sem á 62,3%, Arnþórs Ævarssonar, sem á 2% og eignarhaldsfélagsins Hólshlíðar ehf. sem á 35,7%. Eignarhaldsfélagið Hólshlíð er að fullu í eigu Jakobs K. Kristjánssonar, lífefnafræðings.
Stjórnendurnir sem um ræðir keyptu á árinu 2006 stofnfjárbréf í Sparisjóði Vélstjóra, en sama ár sameinaðist sparisjóðurinn Sparisjóði Hafnarfjarðar og úr varð Byr. „Húnahorn átti 29,7 milljónir hluta í Byr og fjármagnaði stofnfjáraukninguna hjá MP banka árið 2007. Í október á síðasta ári þá fékk félagið veðkall frá MP banka því tryggingarþekjan fór niður fyrir þau mörk sem koma fram í lánasamningi MP banka og Húnahorns. Þeir vildu gjaldfella lánin eða fá auknar tryggingar. Við vorum ekki tilbúnir í slíkt. Þá vildu þeir taka bréfin af okkur og láta þau ganga upp í lánin, sem var gert. Þegar bankar ganga að veðum þurfa þeir að framselja þau og þá kemur í ljós að MP framselur bréf Húnahorns beint yfir á félagið Exeter Holding. Ég bað Fjármálaeftirlitið að skoða af hverju það var gert með þeim hætti því félagið átti ekki nein viðskipti við Exeter Holding. Þetta snýst um 70 milljónir af þessum rúma milljarði, sem sagt er frá í DV,“ segir Ragnar.
Getur ekki upplýst um lán vegna bankaleyndar
Aðspurður hvort Byr hafi veitt Exeter Holding 1,4 milljarða króna lán segist Ragnar ekki geta upplýst um það lögum samkvæmt, enda varði það fjárhagsleg einkamálefni einstakra aðila. Í frétt DV segir að Byr hafi veitt slíkt lán að því er virðist til þess að kaupa umrædd stofnfjárbréf eftir að MP banki óskaði eftir veðköllum frá Húnahorni.
Ragnar segist ekki vita hvaða bréf Exeter Holding hefur verið að kaupa. „Það lítur þannig út að Exeter Holding hafi keypt bréfin af Húnahorni, en það er ekki rétt. Húnahorn hefur ekki átt nein viðskipti við Exeter Holding og hefur aldrei selt félaginu nein bréf. MP banki tók bréfin af okkur og þau enda inn í Exeter Holding,“ segir Ragnar.
Ragnar segist telja að FME sé að skoða hvort það séu bein tengsl milli Húnahorns og Exeter Holding, en hann segir engin slík tengsl vera fyrir hendi. Aðspurður hvernig hann þekki Ágúst Sindra Karlsson segir Ragnar að þeir hafi kynnst þegar Ágúst Sindri vann hjá MP banka og að þeir hafi unnið saman í gegnum knattspyrnufélagið Hauka í Hafnarfirði, en Byr er stór styrktaraðili Hauka og Ágúst Sindri er formaður félagsins.
„Ég hringdi í Fjármálaeftirlitið áðan og mér tjáð að ég væri ekki til rannsóknar,“ segir Ragnar. Hann segist fagna því að Fjármálaeftirlitið sé að skoða þessi mál og uppfylla þar með lagalega skyldu sína. „Ef ég hef gert eitthvað ólöglegt mun ég að sjálfsögðu sæta ábyrgð í samræmi við það, en ég tel að því sé ekki til að dreifa,“ segir Ragnar.




















