Skilanefnd SPRON svarar Nýja Kaupþingi
Skilanefnd SPRON harmar í yfirlýsingu, að Nýja Kaupþing skuli freista þess að gera vinnubrögð skilanefndar SPRON tortryggileg í fjölmiðlum. Skilanefnd SPRON muni hér eftir sem hingað til viðhafa fagleg vinnubrögð og heilindi í samstarfi við aðra aðila.
Yfirlýsingin er eftirfarandi:
Af gefnu tilefni vill skilanefnd SPRON taka eftirfarandi fram vegna fréttatilkynningar Nýja Kaupþings banka þess efnis að skilanefnd SPRON beri ábyrgð á hnökrum á útlánaþjónustu gagnvart viðskiptavinum SPRON.
Í framhaldi af því að innstæður viðskiptavina SPRON voru færðar til Nýja Kaupþings banka þá hófu skilanefnd SPRON og Nýi Kaupþing banki viðræður um að þjónusta vegna útlána SPRON færðist yfir til Nýja Kaupþings banka.
Þjónustusamningur þar að lútandi var undirritaður af skilanefnd SPRON og Nýja Kaupþing banka þann 25. mars sl.
Föstudaginn 27. mars sl. upplýstu stjórnendur Nýja Kaupþings banka skilanefnd SPRON um að þeir sæju tormerki á því að sinna útlánaþjónustu í samræmi við gildandi samning.
Stjórnendur Nýja Kaupþings banka kröfðust aðgangs að upplýsingum um viðskiptasögu viðskiptamanna SPRON. Upplýsingar þessar eru yfirgripsmiklar og hafa orðið til innan SPRON mörg undanfarin ár.
Í undirrituðum þjónustusamningi milli aðila voru engin ákvæði um afhendingu á ofangreindum upplýsingum.
Skilanefnd SPRON taldi sér ekki heimilt að afhenda umbeðnar upplýsingar án samþykkis Fjármálaeftirlits og sendi erindi um málið til FME.
Nýi Kaupþing banki krafðist umræddra upplýsinga án tafar og taldi sér ekki fært að þjónusta útlán SPRON án þeirra. Nýi Kaupþing banki lagði til að gildandi samningur félli niður að öðrum kosti og að SPRON tæki þjónustu útlána viðskiptamanna SPRON aftur í sínar hendur.
Skilanefnd SPRON féllst á tillögu Nýja Kaupþings banka.
Skilanefnd SPRON harmar að Nýi Kaupþing banki skuli freista þess að gera vinnubrögð skilanefndar SPRON tortryggileg í fjölmiðlum. Skilanefnd SPRON mun hér eftir sem hingað til viðhafa fagleg vinnubrögð og heilindi í samstarfi við aðra aðila.
Skilanefnd SPRON mun af fremsta megni beita sér fyrir því að viðskiptamenn SPRON verði ekki fyrir óþægindum vegna máls þessa. Þjónusta vegna útlánanna verður að Ármúla 13a og er þjónustusíminn 5501400. Netfang er thjonustuver@spron.is.



















