Útlendir fjárfestingahópar vilja kaupa Sjóvá af Glitni
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
Nokkrir hópar áhugasamra fjárfesta hafa lýst yfir áhuga á að kaupa tryggingafélagið Sjóvá af skilanefnd Glitnis. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er bæði um innlenda og erlenda hópa að ræða.
Meðal þeirra erlendu aðila sem lýst hafa yfir áhuga er færeyska tryggingafélagið Føroyar, sem hefur frá febrúarlokum verið að kanna möguleikann á því að eignast íslenskt tryggingafélag. Hinir áhugasömu bjóðendur eru allir úr Evrópu, meðal annars af Norðurlöndunum.
Verið er að taka saman upplýsingar um félagið fyrir þá um þessar mundir og hefur það staðið yfir í rúma viku.
Salan mun þó líklegast ekki eiga sér stað fyrr en eftir páska.
Um miðjan mars var gengið frá því að allar íslenskar eignir Milestone, sem áður átti Sjóvá, voru settar undir Sjóvá. Um er að ræða eignir fjárfestingarbankans Askar Capital og fjármálafyrirtækisins Avant. Yfirráð yfir Sjóvá færðust síðan undir skilanefnd Glitnis, en bankinn var stærsti lánardrottinn Milestone.
Ef Sjóvá verður selt er ólíklegt að allar þessar eignir fylgi með samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Mun líklegra er talið að tryggingareksturinn verði seldur ásamt Avant, sem sérhæfir sig í bílalánum. Aðrar eignir, svo sem fasteignasafn Askar Capital, munu þá mögulega fara til erlendra kröfuhafa Glitnis.
Í byrjun mars voru allar erlendar eignir Milestone seldar á um 25 milljarða króna, en þær voru metnar á um 80 milljarða í september 2008. Um er að ræða sænsk fjármálafyrirtæki og tryggingafélög sem heyrðu undir Moderna, dótturfélag Milestone.



















