Samkomulag gert við Cayman-eyjar um upplýsingagjöf
Norðurlöndin og Cayman-eyjar hafa undirritað samkomulag um upplýsingamiðlun. Samningurinn veitir norrænum skattayfirvöldum aðgang að upplýsingum um skattskyldar innstæður og tekjur og getur veitt aðgang að fjármagni sem ekki hefur verið gefið upp til skatts í heimalandinu.
Þetta er mikil framför fyrir norrænt samstarf. Samningurinn er mikilvægur liður í þeirri stefnu að semja við önnur ríki um skattamál, telur Ingemar Hansson ráðuneytisstjóri í sænska fjármálaráðuneytinu, að því er segir í tilkynningu.
Samkvæmt Alden McLaughlin ráðherra alþjóðlegrar fjármálaþjónustu á Cayman-eyjum, er samningurinn við Norðurlönd augljós merki um að stjórnvöld á Cayman-eyjum vilji taka upp staðla OECD um gegnsæi og upplýsingamiðlun í skattamálum.
„Ég vona að þessi samningur sé upphafið á áhrifaríku samstarfi milli Norðurlanda og Cayman-eyja," sagði Alden McLaughlin.
Áður hafa fjármálaráðherrar Norðurlanda undirritað svipaða samninga við stjórnvöld á Mön, Jersey og Guernsey. Þann 16. apríl verður hliðstæður samningur undirritaður milli Norðurlanda og Bermúda. Þá eru samningaviðræður langt komnar við stjórnvöld á Bresku Jómfrúreyjunum, Arúbu og Hollensku Antilleyjunum.



















